Þetta er kannski ekki rétti dagurinn til að hrósa Reykjavíkurborg eftir enn einn sirkusinn í Ráðhúsinu, en ég ætla engu að síður að gera það! Aldrei þessu vant kemur opinbert batterí að því að vera í fararbroddi við nýtingu tækninnar og því ber að hrósa.

Þarna er ég að tala um Menningarnótt og hvernig á vefnum þeirra er boðið upp á að sækja forrit í GSM-síma sinn sem sýnir yfirlit yfir dagskrárliði allan daginn. Ekki er nóg með að þar sé listi yfir viðburðina, heldur má fletta upp viðburðum eftir tímasetningu, sjá staðsetningu hvers viðburðar á korti auk nánarri upplýsinga um allt sem við kemur Menningarnótt.

Forritið virkar fínt í mínum síma og ég myndi pottþétt nota það í staðinn fyrir hefðbundinn bækling ef ég ætlaði niður í bæ á menningarnótt. Það á reyndar ekki eftir að reyna á það, því ég hef öðrum hnöppum að hneppa, því miður – en það breytir því ekki að hugmyndin er flott; virðist virka mjög vel við fyrstu prófanir og er miklu svalari en að fletta einhverjum bæklingum fram og til baka eins og túristi á götuhorni niðri í bæ.

Maður þarf heldur ekki að hafa einhverja súper-dúper síma til að þetta virki – samkvæmt upplýsingum er þumalputtareglan sú að ef GSM-sími er með litaskjá ætti forritið að virka á honum. Því miður fyrir allt hipp og kúl iPhone-fólkið er sá sími þó undanskilinn…

Það er fyrirtækið Ýmir sem hannaði Menningarnæturforritið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Landsbankann. Þar á bæ eru greinilega menn sem eru að fóta sig á markaði sem á bara eftir að vaxa næstu árin og verður spennandi að fylgjast með því sem kemur frá þeim á næstunni.