Ég fór að sækja skráningarnúmerið mitt fyrir maraþonið í dag, sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir eftirfarandi atvik; sem mér finnst að geti kennt okkur tvær mikilvægar lexíur.

Eins og gefur að skilja var mikil umferð á bílastæðunum við Laugardalshöllina, þröngt og allir að reyna að koma sér í stæði til að stökkva inn og skrá sig.

Ef það er eitthvað sem skiptir máli við slíkar aðstæður þá er það tillitssemi. Nema hvað – á bílastæðunum beint fyrir framan innganginn var búið að leggja þessum líka glæsilega Range Rover þannig að hann stóð hálfur út á götuna – sem þýddi að bílar gátu illa mæst beint fyrir framan höllina, heldur þurftu að skiptast á að komast framhjá Range Rovernum. Þarna hefur eigandinn verið svo algerlega fókuseraður á að fá sem þægilegasta stæðið fyrir sig að honum hefur ekki dottið í hug að hugsa nokkuð um afleiðingarnar fyrir aðra. Þetta var svo dónalegt og sýndi svo mikla vanvirðingu við samborgarana að ég hreinlega varð að taka mynd af þessu:

Myndirnar sendi ég svo inn á Flickr og vísaði á þær af Twitter og Facebook. Innan við klukkustund síðar var Twitter-notandi búinn að grafa upp nafn eigandans – Eyrir Invest og Facebook-vinur búinn að finna út að framkvæmdastjórinn – Árni Oddur Þórðarson – væri sá sem notaði bílinn dags daglega.

Nú hef ég ekki hugmynd um hvort hann sjálfur hafi verið á bílnum í dag, eða hvort þessi hegðun í umferðinni sé eitthvað sem viðkomandi stundar dags daglega – en ég ætla að nota þessa sögu til að benda á tvennt.

Annars vegar að nú á tímum samfélagsmiðlanna getur maður lent í því að hvað sem maður gerir á opinberum vettvangi komist í dreifingu á Netinu svo að segja samstundis. Netverjar dreifa ekki bara efninu, heldur bæta líka við upplýsingum og svara spurningum sem upp koma. Sem sagt: Þú getur ekki verið asni opinberlega og treyst því að enginn frétti það.

Hins vegar – og þetta segir kannski svolítið andann í þjóðfélaginu núna (og þá kannski mig í leiðinni) – þá getur fólk á flottum og dýrum jeppum jafnvel enn síður treyst því að hægt sé að komast upp með svona. Í hreinskilni sagt veit ég ekki hvort ég hefði tekið þessar myndir og dreift þeim ef þetta hefði verið Toyota Corolla.

Málið er bara að Range Rover-ar – hvort sem eigendum slíkra bíla líkar það betur eða verr – eru orðnir táknmynd ruglsins sem var hérna í þjóðfélaginu og setti þjóðina á hausinn á endanum. Og ef slíkum bílum er lagt frekjulega þannig að það sé til ama fyrir samborgarana kveikir það mjög sterka myndlíkingu af ákveðinni stétt manna sem svínuðu á þjóðinni í bankabólunni og hugsuðu eingöngu um að skara eld að sinni köku.

Þannig að lærdómur nr. 2 af þessu er: Range Rover eigendur – leggið í fokkings bílastæði eins og við hin!